Vivaldi - Hraður og öruggur

135 þ. umsagnir
Efnisflokkun
PEGI 3
5 m.+
Niðurhal
Efnisflokkun
PEGI 3
Ótakmörkuð netnotkun
Frekari upplýsingar
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd
Skjámynd

Um þetta forrit

Vivaldi er nýr vafri sem stendur vörð um friðhelgi. Hann er hlaðinn notadrjúgum eiginleikum s.s. innbyggðum auglýsinga- og rekjaravörnum og þýðingum. Tól eins og minnismiðar og síðuskjáskot bjóða upp á óteljandi möguleika en spara líka tíma. Valmöguleikar eins og alvöru borðtölvuflipar, dökkt/ljóst þema og val um margvíslegar uppsetningar gera þér kleift að gera vafrann að þínum. Sæktu Vivaldi núna og vafraðu hratt og ókeypis.

🕵️‍♂️ EINKA VAFUR

Þinn vafri, þitt einkamál. Við fylgjumst ekki með því hvernir þú notar Vivaldi og einkaflipar bjóða upp á að vafrasagan þín er öðrum hulin. Leitir, heimsóttar síður, kökur og tímabundnar skrár, vistast ekki þegar þú notar einkaflipa.

💡 ALVÖRU FLIPAMÖGULEIKAR

Veldu á milli þess að nota a Flipastiku (hentar vel á stóra skjái og spjaldtölvur) eða flipaskipti til þess að sýsla með flipana þína. Í flipaskiptinum notar þú strokur til þess að finna opna flipa, einkaflipa og nýlega lokaða flipa í vafranum eða opna flipa á öðrum tækjum.

⛔️ LOKAR Á AUGLÝSINGAR OG REKJARA

Innbyggð Auglýsingavörn lokar á auglýsingar og hindrar rekjara í að elta þig í netheimum - viðbætur eru óþarfar. E.s. Þú vafrar líka hraðar fyrir vikið.

🏃‍♀️ VAFRAÐU HRAÐAR

Vafraðu hraðar með því að setja uppáhalds bókamerkin sem hraðvalshnappa á nýju flipasíðunni svo þú hafir þá innan handar. Flokkaðu þá í möppur, veldu útlit sem hentar þér. Þú getur líka skipt um leitarvélar á augabragði með því að nota gælunöfn leitarvéla um leið og þú slærð inn í veffangastikuna á Vivaldi (t.d. "d" fyrir DuckDuckGo).

🛠 INNBYGGÐ TÓL

Vivaldi er með innbyggð tól sem býður upp á meiri afkastagetu og hraða þar sem ekki þarf að hoppa á milli forrita. Sjáðu bara:

- Þýddu vefsíður í friði með því að nota Vivaldi þýðingar (keyrðar á Lingvanex).
- Skrifaðu minnismiða um leið og þú vafrar og samstilltu þá á öruggan hátt á milli tækja.
- Taktu skjáskot af heilli síðu (eða völdum hluta hennar) og deildu með öðrum.
- Notaðu síðuaðgerðir til þess að aðlaga efni á síðu með síum.

🍦 TAKTU GÖGNIN ÞÍN MEÐ ÞÉR

Vivaldi er líka á Windows, Mac og Linux! Haltu áfram þar sem frá var horfið með því að samstilla gögn á milli tækja. Opnir flipar, vistuð innskráning, minnismiðar og bókamerki eru samstillt á milli allra tækja með dulkóðun enda á milli. Öryggið er aukið með dulkóðuðu lykilorði.

Allir eiginleikar Vivaldi vafrans

- Dulkóðuð samstilling
- Auglýsingavörn
- Skjáskot af síðu
- Flýtilyklar á uppáhalds síður
- Minnismiðar með stuðningi við rich text
- Einkaflipar
- Dökkt viðmót
- Bókamerkjastjóri
- QR kóða skanni
- Stuðningur við utanaðkomandi niðurhalsstjóra
- Nýlega lokaðir flipar
- Gælunöfn leitarvéla
- Leshamur
- Klóna flipa
- Síðuaðgerðir
- Val á tungumáli
- Niðurhalsstjóri
- Sjálfvirk hreinsun á vafragögnum við lokun á vafra
- WebRTC lekavörn
- Kökuborðavörn
- 🕹 Innbyggður tölvuleikur

Sumir tenglar í Vivaldi eru samstarfstenglar. Sem Amazon-félagi og eBay-samstarfsaðili getur Vivaldi fengið þóknun ef þú gerir hæfan kaup í gegnum vefsíðu sem þú opnar í Vivaldi. Þetta styður Vivaldi og hjálpar til við að halda sjálfstæði þess.

✌️ HVER ER VIVALDI?

Við erum að smíða vafra sem er hlaðinn eiginleikum. Við göngum út frá tveimur meginreglum: Friðhelgi er sjálfgefin og allt er val. Við rekjum ekki ferðir þínar og trúum á það að hugbúnaður sem ekki njósnar um notendur eigi að vera reglan, ekki undantekning. Hugbúnaður á að vera jafn einstakur og manneskjan sem notar hann. Þú ræður hvaða eiginleika þú notar. Þegar öllu er á botninn hvolft þá er þetta þinn vafri.

Til þess að nýta Vivaldi sem best, skaltu samstilla við borðtölvuna þína (á Windows, MacOS og Linux). Hann er ókeypis og með honum fylgir fullt af geggjuðum eiginleikum. Sæktu á: vivaldi.com

Taktu síma- og spjaldtölvuvafrið upp á næsta stig með Vivaldi vafranum. Einkaflipar, innbyggð auglýsingavörn og nú er líka hægt að þýða beint úr vafranum. Gerist ekki betra.
Öflugur, persónulegur og prívat. Lokar á rekjara. Búinn til í Evrópu.
Uppfært
1. okt. 2026
Sérvaldar fréttir

Gagnaöryggi

Öryggi hefst með skilningi á því hvernig þróunaraðilar safna og deila gögnunum þínum. Persónuvernd gagna og öryggisráðstafanir geta verið breytilegar miðað við notkun, svæði og aldur notandans. Þetta eru upplýsingar frá þróunaraðilanum og viðkomandi kann að uppfæra þær með tímanum.
  • Engum gögnum deilt með þriðju aðilum
    Nánar um yfirlýsingar þróunaraðila um deilingu gagna
  • Engum gögnum safnað
    Nánar um yfirlýsingar þróunaraðila um gagnasöfnun

Einkunnir og umsagnir

121 þ. umsagnir
Nikulás Úlfar Másson
15. júlí 2026
Góður, öruggur og flottur vafri.
Var þetta gagnlegt?
Vivaldi Technologies
15. júlí 2026
Takk kærlega fyrir frábæra umsögn, Nikulás. Við erum ánægð að þú kunnir vel að meta Vivaldi. Mæltu endilega með vafranum við aðra. Vivaldi-teymið
Guðjón Aðalsteinsson
27. júní 2026
Hraðvalið og bókamerkin eru snilld.
Var þetta gagnlegt?
Vivaldi Technologies
27. júní 2026
Takk kærlega, Guðjón. Það gleður okkur að Hraðvalið og bókamerkin nýtast vel. Við kunnum mjög vel að meta stuðninginn, og væri frábært ef þú mælir með Vivaldi við fleiri.
Árni Oddsson
3. júní 2026
Vivaldi er eins og vafrar eiga að vera.
Var þetta gagnlegt?
Vivaldi Technologies
3. júní 2026
Halló. Takk fyrir hlý orð og stuðninginn. Við erum ánægð að Vivaldi standist væntingar þínar. Vinsamlegast segðu öðrum frá okkur. - Vivaldi Team

Nýjungar

Vivaldi 8.2 hits Android with exciting news 🎉:

- Extensions support: full access to Chrome Web Store extensions from your phone or tablet, so you can shape your mobile browser exactly the way you want it.

- Local calculator in your Address Bar: a convenient and private way to perform your daily math, directly from your browser. No more switching apps or opening new tabs!

Love this update? Rate us 5⭐ and tell others about Vivaldi!